Við höfum undanfarin sumur sinnt ýmsu sem fólk hefur verið að gera á göngugötunni á Laugaveginum fyrir framan búðina okkar að Laugavegi 20, eins og að sjá um krítartöflu fyrir krakka, sem við sáum um að hýsa, þrífa og settum hana út á morgnanna og tókum inn á kvöldin svo hún yrði ekki skemmd.
Núna langar okkur að reyna að fá fólk með okkur í að setja upp lítið bókasafn/fríbúð í kassa við bekk hér fyrir framan búðina. Bókakassa sem fólk getur annaðhvort tekið bók sem þeim langar að lesa eða komið og gefið bækur, eða þá sest á bekkinn og gluggað í eða lesið í einhverri bókinni.
Ég er ekki mikill smiður og óska því eftir einhverjum sem hefði áhuga á að smíða bókakassann sjálfan en ég skal sinna honum. Hann má ekki vera of stór svo auðvelt sé að bera hann inn eftir daginn og á einhverskonar fæti svo kassinn væri í lestrar hæð (hæð við bekkinn).
Fyrirmyndin er The little free library sem eru með svona bókasafnskassa út um allan heim og þar á meðal í Reykjavík, en hér er hann er staðsettur í Hljómskálagarðinum við styttuna af Bertel Thorvaldsen.
Hér er tengill á The little free library vefinn en þar má sjá alskonar skemmtilegar útfærslur á hugmyndinni.
Eru einhver með í þetta verkefni? Það þarf ekkert að vera einhver einn/ein sem smíðaði kassann, fólk getur hæglega tekið sig saman um það. Og eins að leggja til bækur í kassann, það þarf að fylla hann helst til að byrja með og eiga svo alltaf einhverjar bækur á lager hér inni í búð ef hann er að tæmast of fljótt, en oftast er ágætis jafnvægi á svona verkefnum, það er fólk kemur með álíka mikið og það tekur.
Göngugatan verður opnuð á 17. júní og langar mig til að bóksafnið/kassinn verði tilbúin fyrir þann tíma, en hann mætti alveg vera tilbúinn fyrr líka.



Sem dæmi getum við tekið að þú bjóðir til láns garðsláttuvél. Slíkt tæki kosta mikla peninga. Vilt þú lána slíkt tæki til manneskju sem er þér algerlega ókunnug og ekkert nema nafn inn á einhverjum vef? Kanski ertu þannig að þú treystir það mikið, en það er umdeilanlegt að þú ættir að treysta svo mikið. Aftur á móti ef þú sérð á þessum sama vef að þetta er andlit og virkur þátttakandi þá hefur sú manneskja mikið meira traust þitt og því myndi þér líða mikið mun betur með að lána sláttuvélina.